Myndir af fötunum sem ég saumaði fyrir lokalínuna mína.
Ég setti svo upp sýningu á ganginum upp í skóla með samnemendum mínum. Hér er mitt svæði.
Við héldum tískusýningu í garði skólans sem var skemmtileg upplifun.
Ég var svo með einn óvæntan kjól í lokinn á sýningunni sem var ekki í myndatökunni. Ég var með kimono og blúndukjól sem mig langaði að sýna líka en þar sem blúndukjóllinn er alveg gegnsær og mjög stuttur þá ætlaði ég upphaflega ekki að hafa hann með. Ég fann svo kjól sem passaði innanundir hann og úr varð eitt auka dress.