un- frappin’ believable
The truth

Karamellu Frappó
- Vanillu bragðbætt mjólk (eða sjeikblanda eins og á Joe&TheJuce)
- Þykk karamella (smurð innan í glasið)
- Klakar
- Síróp að eigin vali
- Kaffiskot (espresso)
Aðferð:
Sjeik/mjólk og klakar ásamt sírópi sett í blandara þar til úr verður krap. Glasið smurt að innan með karamellu á meðan. Mjólkurkrapi hellt í glasið og að lokum kaffiskoti (espresso).
Það má toppa með rjóma og skrauti. Njótið með röri!

Ég nota saltkaramellu frá Stonewall Kitchen. Sjeikmjólkin fæst víða og til frá tveimur framleiðendum, MS Vanillublanda og innflutt í hvítum brúsa (sama og á Joe&TheJuce). Blandarinn sem ég á heitir Nutribullet og kaffivélin sem ég nota er frá Nespresso.
Ekki kostað

Myndirnar voru teknar fyrir Stúdentablað Háskóla Íslands af Sædísi Hörpu.
Grein eftir mig um sama efni, birtist í 1. tölublaði 2020, 23.okt.